Mótmæli á röngum stað

Skiljanleg er reiði þeirra sem hafa farið illa í samskiptum sínum við bankana. Bönkunum hefur verið stýrt af mikillri óbilgirni og engin miskunn sýnd nema þeim sem skulda nógu mikið eins og útrásarvíkingarnir og braskaranir. Það er ekki rétt að mismuna þegnunum varðandi lán sem verða líklega aldrei greidd.

Á dögunum var sýnt í fréttatímum sjónvarps þar sem hugrökk kona mætti í Landsbankann og krafðist réttlætis í skuldamálum sínum. Þar var hún að mótmæla ranglæti því sem hún hafði verið beitt, á réttum stað á réttum tíma og á réttan hátt.

Þegar þingið var sett núna á dögunum var það mótmælendum til vansa að fleygja eggjum í varnarlaust fólk. Að rúður hafi verið brotnar benda til að þetta hafi að einhverju verið skrílslæti. Mótmæli eiga að vera friðsöm og þeim til sóma sem þeim beita. Þau geta kannski verið hávaðasöm en þau eiga ekki að skaða neinn eða vera neinum óviðkomandi til móðgunar.

Mosi


mbl.is Girðing um Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ekki gleyma því að stór hluti uppboðsbeiðna kemur frá ríki, sveitarfélögum og íbúðalánasjóði.

Jú það er verið að mótmæla á réttum stað. 

Sigurður Sigurðsson, 4.10.2010 kl. 18:18

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Guðjón, þú segir að ekki sé verið að mótmæla á réttum stað. Það má satt vera en fer þó eftir því hverju verið er að mótmæla. Bankahrunið er staðreynd, mikil mótmæli voru haustið 2008 og fyrripart vetrar 2009 vegna þess, sem leiddi m.a. til þess að stjórnin hrökklaðist frá.

Nú er hinsvegar verið að mótmæla þeirri aðferð sem stjórnvöld hafa valið til að koma okkur út úr þeirri kreppu sem þá skapaðist. Það er verið að mótmæla forgangsröðun stjórnvalda. Það er verið að mótmæla aðgerðarleysi til að koma hjólum atvinnulífsins af stað, en það er jú forsenda fyrir því að við komumst á rétta braut aftur. Það er verið að mótmæla því að stjórnvöld skuli hafað valið þá leið að láta almenning borga fyrir óráðssíu og í sumum tilfellum rán nokkurra einstaklinga. Það er verið að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda til hjálpar fjölskildunum, sem margar hverjar munu vera á götunni eftir næstu mánaðarmót. Það er verið að mótmæla þeirri eindrægu afstöðu sem stjórnvöld hafa tekið með fjármálastofnunum, stofnunum sem með óbilgyrni ráðast að lántakendum, stofnunum sem stóðu fremst í fylkingu við hrunið, stofnunum sem dæmd hafa verið fyrir lögbrot í Hæstarétti.

Það er vissulega verið að mótmæla á réttum stað!! 

Gunnar Heiðarsson, 4.10.2010 kl. 19:31

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Því miður mismuna bankarnir þegnunum gríðarlega. Þar kemur fram í gríðarleg mismunun og greinilega ekki allir jafnir fyrir lögunum.

Á dögunum var fjölskyldu Halldórs Ásgrímssonar gefnar upp verulegur hluti skulda vegna útgerðarfyrirtækis síns. Samt var unnt að greiða út gríðarlegha háan arð.

Ómari Ragnarssyni taldist svo til á heimasíðu sinni að ef sama hlutfall hefði verið haft til hliðsjónar við að fella niður skuldir fjölskyldna, væru margir skuldlitlir eða jafnvel skuldlausir.

Þessi ákvörðun um vaxtaokrið og mismunun þegnanna var EKKI tekin af ríkisstjórninni heldur bönkunum. Því er rétt að beina mótmælum fremur gegn bönkunum en ekki húsunum okkar Álþingishúsinu og Dómkirkjunni. Það var til mikils vansa að rúður hefðu verið brotnar. Það er ekki rétt að beina reiði sinni að húsum og henda eggjum að samborgurunum.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 4.10.2010 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 242914

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband