Óþarfa bruðl

Aldrei hef eg skilið þetta gríðarlega bruðl sem tengist hernaðarumsvifum. Við Íslendingar höfum verið blessunarlega lausir við þetta og með öllu óskiljanlegt að unnt sé að fleygja tugum milljónum í svona dellu.

Hér er um beiskan arf frá hægristjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar sem fannst alveg sjálfsagt að taka ákvarðanir án þess að bera þær áður upp við einn eða neinn. Þessir herramenn lýstu yfir stuðningi við umdeilt stríð Bush og Blair gegn Írak sem því miður virðist ekki neinn enda vera að taka.

Hvað kostar að fá þetta umdeilda hernaðardrasl? Skattborgaranir á Íslandi eru blóðmjólkaðir vegna Icesave og við höfum ekkert efni á svona flottræfilshætti þó svo Davíð og Dóri hafi talið það á sínum tíma.

Herinn burt, hvort sem hann er amerískur, breskur, danskur, norskur, franskur eða þýskur. Það er sami hryllingurinn sem fylgir þessum stríðsvélum þó þær kunni að vera hálfgerðir forngripir.

Mosi


mbl.is Þýsk flugsveit komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

þarna erum við sko sammála Mosi/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 1.6.2010 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 242923

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband