Óreiðan mögnuð

Eigi er að sjá að þetta Magma fyrirtæki eigi bót fyrir boruna á sér. Það er jafnvel skuldsettra en Geysir Green Energy og Atorka jafnvel til samans.

Svo er að sjá að þeir sem enn eru í forystusveit „hrunflokkanna“ séu enn við sama heygarðshornið og að enn sé 2007.

Árni Sigfússon á sér nafna sem uppi var á Sturlungaöld. Hann var að vísu Magnússon og bjó í Brautarholti á Kjalarnesi. Ásamt Kolbeini unga og Gissuri Þorvaldssyni síðar jarl, var hann fyrrum tengdasonur Snorra Sturlusonar. Þeir ákváðu að hittast einu sinni og voru þá samantekin ráð þeirra að ríða í Reykholt um miðjan septembermánuð 1241 og ryðja fyrrum tendaföður sínum úr vegi. Varð Árni til að leggja til Snorra fyrstur manna sem sagði: „Eigi skal höggva“.

Sturla Þórðarson sagnaritari kvað Árna þennan hafa fengið viðurnefnið „óreiða“ enda varð þvílík vitleysa og vandræðagangur í öllu sem Árni þessi kom nærri.

Nú mun Árni í Brautarholti búinn að fá sér annan nafna sem gjarnan mætti klína við sama viðurnefni: Árni Sigfússon bæjarstjóri í Keflavík mætti gjarnan vera nefndur „óreiða“  enda mun líða langur tími uns greitt verður úr allri flækjunni sem þessi bæjarstjóri hefur magnað upp með hverju árinu sem líður.

Mosi


mbl.is Magma fær 14,7 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Óreiðan er á ýmsum stöðum en til að losa óreiðuna þarf fólk sem kann að leysa úr henni, það átti Steingrímur og Jóhanna að gjöra en ekki að færa þjóðina aftur á steinöld, Eins og allir vitibornir menn sjá þá er þetta ríkisstjórninni að kenna svo mikið er víst.

Jón Sveinsson, 19.5.2010 kl. 13:50

2 Smámynd: Kristján H Theódórsson

 Var hann ekki kallaður Árni beiskur?

"Eftir það urðu þeir varir við hvar Snorri var og gengu þeir í kjallarann Markús Marðarson, Símon knútur, Árni beiskur, Þorsteinn Guðinason, Þórarinn Ásgrímsson. Símon knútur bað Árna höggva hann.
„Eigi skal höggva,“ sagði Snorri.
„Högg þú,“ sagði Símon.
„Eigi skal höggva,“ sagði Snorri.
Eftir það veitti Árni honum banasár og báðir þeir Þorsteinn unnu á honum.Þetta voru lokaorð Snorra Sturlusonar sem var drepinn varnarlaus á heimili sínu. "

Heimild:
Sturlunga saga ritstjóri Örnólfur Thorsson, Svart á hvítu, Reykjavík 1988.

Skiptir reyndar ekki öllu, því beyskur er þessi kaleikur sem nafni hans Sigfússon býður sínum þegnum og þjóð að bergja á!

Kristján H Theódórsson, 19.5.2010 kl. 14:53

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Jón: ertu ekki að hengja bakara fyrir smið?

Kristján: Vel má það vera að í Sturlungu þeirri sem þú ert með undir höndum sé annað viðurnefni Árna í Brautarholti. Í minni útgáfu frá 1946 er hann nefndur óreiða og undir það tekur Páll Eggert Ólason í Íslenskum æviskrám, I. bindi bls. 60-61. Hann var kvæntur Hallberu en eftir að þau skildu giftist hún Kolbeini unga. Árni var í Noregi og naut hylli Hákonar konungs, kannski fyrir að hafa rutt Snorra úr vegi? Eftir Árna liggur eitt kvæðaerindi PEÓl).

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 19.5.2010 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband