Ábyrgðarlaust kæruleysi

Að skipuleggja ferðir á varhugaverðar slóðir og sinna ekki aðvörunum um slæmt veður er ámælisverð HEIMSKA. Í öllum vönduðum bæklingum eru fyrirvarar um breytingar eða áskilinn réttur viðkomandi að fella niður skipulagða ferð vegna ófyrirsjáanlegar  forsendur, þ. á m. vegna veðurs.

Fyrir svona heimsku og útkall ættu björgunarsveitir að setja upp sérstaka gjaldskrá og senda velsmurðan reikning til viðkomandi!

Fyrir áratug eða svo var skipulögð ferð þvert yfir Vatnajökul. Sú för endaði með ósköpum en hefði getað farið jafnvel enn ver. Mjög illa útbúinn hópur til jöklaferða fór á vélsleðum þvert yfir jökulinn og lenti í hrakningum undir lok ferðarinnar yfir jökulinn. Kalla þurfti þyrlu til og björgunarsveitir. Þessi aðstoð kostaði skattborgara stórfé og ferðaskrifstofan fékk himinháar kröfur frá erlendum hröktum ferðalöngum. Þetta reið ferðaskrifstofunni að fullu og bar hún ekki barr sitt eftir þetta.

Tryggingafélög mættu skoða þessi mál enda er lítið vit í núverandi fyrirkomulagi þar sem algjört kæruleysi virðist vera í fyrirúmi. „Þetta reddast“ er hugsunarháttur þeirra sem aðhyllast þessi sjónarmið. En það er ekki alltaf sem unnt er að „redda“ öllu. Finnst þessum aðilum vera réttlætanlegt að alltaf sé unnt að kalla á tugi jafnvel hundruði björgunamanna til leitar og aðstoðar og ekki greiða eina einustu krónu til slíks? Hvað segja atvinnurekendur sem þurfa e.t.v. að missa marga af sínum bestu mönnum úr starfi tímabundið vegna þess að þeir eru í björgunarsveit? Hversu mikið tjón má rekja til kæruleysisins sem auðveldlega mætti koma í veg fyrir með skynsamlegum hætti?

Kannski mætti bæta einum málshætti við í páskaegg landsmanna: Sá sem heimskur er, á að halda sig sem lengst heima!

Mosi


mbl.is Gerðu skjól úr sleðanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski á þessi málsháttur betur við:

Hver sé sinnar gæfu smiður?

Hvað segja skátarnir?

Eru ekki allir ÁVALLT VIÐBÚNIR? (Þar með talið ferðskrifst.& ferðafólk)

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 09:59

2 identicon

Hvar stóð í fréttum að hópurinn hafi verið ,,mjög illa útbúinn", eins og þú orðar það?

Alveg er makalaust hvað svona sófabloggarar eru tilbúnir að fordæma allt og alla. Ryðjast á ritvöllinn með óbótum og upphrópunum, mjög líklega byggðum á 100% vanþekkingu. Alltaf þegar eitthvað fer úrskeiðis er hópur mosavaxins fólks heima í stofu (sennilega fólk sem fer aldrei út vegna stórhættu sem getur skapast, og til að spara ,,skattborgurunum" stórfé) tilbúinn með skýringar og útlistanir á því hvað aðrir eru heimskir.

Kannski mætti bæta einum málshætti við í páskaegg landsmanna: Heimskur er sá er heima situr.                        

Sigurgeir Jónsson (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 10:51

3 identicon

Ekki ætla ég að meta það hvort þarna hafi verið um að ræða kæruleysi eða ekki. Ég var ekki á staðnum og get því ekki dæmt um það. Hinsvegar er það alveg klárt mál að ef sá sem í slysinu verður eða sá sem er ábyrgur á að standa straum af greiðslum fyrir björgunina mun dauðsföllum og óhöppum með alvaregri afleiðingar fjölga. Það má sem dæmi rifja upp strand Vikartinds sem varð að stórum hluta til vegna þess að stjórnandi þess skips afþakkaði aðstoð landhelgisgæslunnar of lengi vegna þess kostnaðar sem hlotist hefði af björguninni.

Greiðslur til hjálparsveitanna munu ekki hjálpa neinum. Kaupum heldur meira af flugeldum!

Valdimar (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 11:06

4 identicon

@ Sigurgeir. Besta comment sem ég hef lesið nokkurn tíman á moggabloggi.

Fannar (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 11:47

5 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Sigurgeir lestu blogg höfundar áður en þú ferð að vera með stóryrði. Hann minnist ekkert á að þessi hópur hafi verið illa útbúinn, heldur hópurinn sem fór yfir Vatnajökul fyrir áratug síðan. En mér finnst það ansi mikið kæruleysi af ferðaskrifstofu að ana í jöklaferðir, þegar spáð er snældu vitlausu veðri. Fyrir guðsmild fannst þetta fólk áður en illa færi.

Hjörtur Herbertsson, 15.2.2010 kl. 12:02

6 Smámynd: Baldvin Jónsson

Veðurspáin spáði ekki snældu vitlausu veðri á suðurlandi. Íslenskar veðurspár spáðu fyrir um vont veður á norðurlandi og spárnar sem við styðjumst almennt við af http://yr.no ekki heldur.

Ég var þarna í gær og lýsi aðstæðum hér: http://baldvinj.blog.is/blog/baldvinj/entry/1018630

Baldvin Jónsson, 15.2.2010 kl. 14:45

7 Smámynd: Hlöðver Stefán Þorgeirsson

Gleymist ekki að nefna hversu ótrúlega skýr þessi kona hefur verið í kollinum.

Bregst hún ekki nákvæmlega rétt við?

Myndu ekki flestir ana á stað í panick og reyna að bjarga sér sjálfir þrátt fyrir að það sé nær ómögulegt. Valda því þar með að ómögulegt er að finna þá vegna þess að þeir eru komnir kílómetrum frá upprunalegri slóð.

Ég tel hana eiga hrós skilið, e.t.v. annað en ferðaskrifstofan.

Hlöðver Stefán Þorgeirsson, 15.2.2010 kl. 14:59

8 Smámynd: Hlöðver Stefán Þorgeirsson

Ég vil bæta því við eftir að hafa lesið blogg Baldvins að ég viðurkenni það fúslega að ég hef ekkert vit á þessum málum og vil því taka til baka gagnrýnina ferðaskrifstofuna í seinustu málsgreininni. Hvort sem hún á rétt á sér eða ekki, aðrir geta dæmt um það. :)

Hlöðver Stefán Þorgeirsson, 15.2.2010 kl. 15:06

9 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þakka ykkur fyrir þeim sem lesið hafa gaumgæfilega það sem eg ritaði og hvet hina að lesa aftur yfir ef þeir hafa misskilið orð mín.

Að fara á jökul fylgir alltaf mikil áhætta. Veður breytist oft mjög fljótt rétt eins og hendi sé veifað. Því eru jöklaferðir ekki eitthvað þar sem kæruleysi kemur við sögu.

Björgunarsveitir hafa sýnt ótrúlega þolinmæði sem og þeir atvinnuveitendur sem hafa ljáð máls á að starfsmenn þeirra séu viðbúnir í útköll. Þetta hefur eðlilega þau áhrif að ýmsir atvinnurekendur taka á sig að einhverju leyti þetta gjald sem þeir sem þurfa á þjónustu björgunarsveita að halda, ættu sjálfir að greiða.

Hvarvetna um heim þarf að greiða fyrir þessa þjuónustu. Þannig ganga yfirvöld í Sviss þannig frá, að engum er hleypt á hættulegar slóðir, t.d. Mattehorn, nema hafa sýnt fram á að þeir hafi nægjanlega þjálfun sem og hafa keypt tryggingu ef á reynir. Það fyrirkomulag er til mikillrar fyrirmyndar.

Tíð slys á jöklum sérstaklega Langjökli ættu að vera öllum til alvarlegrar aðvörunar og koma áhættufíklum í skilning um að þetta getur orðið mjög alvarlegt hættuspil.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 16.2.2010 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 242836

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband