Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013

Lýðskrum Framsóknarflokksins

Flestum þykir framsóknarmenn vera ansi bratta í yfirlýsingum sínum.

Fyrir um 20 árum átti að gera Ísland fíkniefnalaust 2000. Þó þeir færu með mikilvæga málaflokka þar á meðal heilbrigðismál, gerðu þeir ekkert í málinu. Þetta var eins og hvert annað rugl sem þessi flokkur hefur því miður náð ótalmörg atkvæði út á.

Nú vill Framsóknarflokkurinn 20% skuldaniðurgreiðslu. Ljóst er að stórtækir skuldabrjálæðingar njóta mesta gagn af þessari bröttu loforðaleið en þeir sem verst standa, kemur þetta að litlu sem engu gagni.

Í Fréttablaðinu í dag segir að Íslandsbanki hafi afskrifað hátt í 500 milljarða. Af þessari fjárhæð voru afskrifaðar um 170 milljarðar sem Bakkabræður höfðu á sínum snærum (Útvarp Saga um 9.30 nú í morgun). Hvað skyldu vildarvinir Framsóknarflokksins notið góðs af?

Lýðskrumið er allsráðandi hjá þessum vandræðaflokki. Framsóknarflokkurinn ber öðrum fremur ábyrgð á gríðarlegu náttúruraski á Austurlandi vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þess má geta að gamall kosningasmali Halldórs Ásgrímssonar fékk jörðina Hól í Fljótsdal fyrir lítið. Var það tilviljun að stöðvarhús Fljótsdalsvirkjunar var byggt í landi þessarar sömu jarðar?

Ef þetta er ekki alvarleg spilling, þá veit venjulegur maður ekki hvað spilling er.

Framsóknarflokkurinn hefur verið í forystusveit þeirra sem spilltastir eru.

Óskandi er að þjóðin megi upplýsast betur um staðreyndirnar áður en það velur þann stjórnmálaflokk sem stýrt er af auðmanni sem byggir auð sinn á hermangsgróða og ýmsum vafasömum athöfnum.


mbl.is Segir heimilin fá leiðréttingu strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er rökstuðningurinn?

Í ljós hefur komið að NA/SV flugbrautin á Reykjavíkurflugvelli er sáralítið notuð. Hver er þá rökstuðningurinn fyrir nýrri flugbraut af þeim ástæðum í Keflavík?

Ljóst er að veðuraðstæður fyrir flug á Íslandi geta verið stundum erfiðar og flugmönnum stundum allharður skóli. En þeim hefur tekist oft betur en mörgum erlendum starfsfélögum sínum. Langi vel skyldi eg aldrei hvers vegna huglitlir erlendir farþegar klappa eftir vellukkaða lendingu. Áttaði mig á því þegar eg lenti í blíðskaparveðri á flugvellinum á eynni La Palma/Kanaríeyjum fyrir allmörgum árum. Hélt eg um tíma að flugvélin brotlenti en sterkur hliðarvindur var á einu flugbraut vallarins sem búnaður flugvélarinnar virtist ekki gerður fyrir aðstæður sem þessar. 

Góðar stundir. 

  


mbl.is Vilja opna flugbraut í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða saksóttir menn hvítþvegnir af nýjum valdhöfum?

Ekki blasir vel við fylgi stjórnarflokkanna verði niðurstaða kosninganna í samræmi við mismunandi vel unnar skoðanakannanir. Sumar eru jafnvel skoðanamyndandi fremur en að mæla fylgi flokka.

Mjög sennilegt er að ef Framsóknarflokkurinn verði ráðandi í Framsóknarflokknum muni gæðingar flokksins fá „betri“ meðferð en verið hefur. Og ef Sjálfstæðisflokkurinn fer einnig í ríkisstjórn byrji ballið aftur með brask, blekkingar og spillingu á nýjan leik. Sennilega verður byrjað á að fjölga ráðherrum, kljúfa ráðuneytin niður í smærri einingar til að auðvelda helmingaskipti til valda og áhrifa.

Verður frjálshyggjudansinn stiginn að nýju? Hvað verður um  Landsbankann? Verður hann afhentur flokksgæðingum?  Þar sem ríkið á nú aðeins einn banka fær þá hinn flokkurinn Landsvirkjun í sinn hlut til að flokksgæðingar fái einnig fyrir sinn snúð?

Verður vatnið einkavætt þannig að við verðum að greiða flokksgæðingum fyrir afnot vatnsins?

Og verður tekið fram fyrir hendur Sérstaks saksóknara og dómstólanna að ónáða máttarstoðir spillingaflokkana í athöfnum sínum? Verða hvítflybbamönnum gefnar upp sakir, kannski gegn loforði um að greiða í kosningasjóði x-B og x-D?

Eitt er víst: þrátt fyrir gylliboð þá eru markmið þessara flokka ekki þau sömu og þeir gefa í skyn. Hagur hátekjumanna verður tekinn fram fyrir hag venjulegra heimila.


mbl.is Stór mál á dagskrá héraðsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggi er forgangsmál

Þessi nýja slökkvistöð og aðstaða fyrir björgunarlið hefur lengi staðið til. Þegar útkall vegna bruna eða björgunar berst, er spurning um mínútur. Sem stendur er næsta slökkvilið í Árbæ sem er nokkuð langt fyrir vaxandi byggð með Sundum og Mosfellsbæ, Kjalarnesi (Norðurbæ Reykjavíkur) og Kjós.

Nú hefur loksins verið tekin ákvörðun um byggingu fangelsis á Hólmsheiði og er það vel nema ósköp verður það dýrt hús. Þrátt fyrir allt góðærið undir stjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins þá var ekki veitt einni einustu krónu til þessa verkefnis. Kannski hagkvæmara hefði verið að breyta litlu lúxúshóteli úti á landi í tukthús?

Og nú hefur verið tekin ákvörðun um nýja flugstöð fyrir Reykjavíkurflugvöll og bættri aðstöðu þar sem m.a. gengur út á töluvert skógarhögg sem er fyrir neðan allar hellur.

En það eru blankheitin hjá ríkissjóði sem og sveitarfélögunum. Forgangsmálin eru stundum sett í einkennilega röð.


mbl.is Ný slökkvistöð í Mosfellsbæ strand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggjum Myrká undir skógrækt

Vonandi sækir Skógræktarfél Eyfirðinga um ábúð þessarar jarðar. Þessi jörð hentar tæplega fyrir mjólkurframleðslu sökum þess afskekkt hún er en fremur til sauðfjárbúskapar sem í raun er nóg fyrir.

Arðsama skógrækt er ábyggilega unnt að stunda á þessari jörð og tengja við útivist of ferðaþjónustu.

Góðar stundir.


mbl.is Myrká auglýst til ábúðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóriðjudraumarnir breytast í vitfirringu

Andri Snær á þakkir skildar að mæta á fundi þessa orkufyrirtækis og leggja fram beinskeyttar athugasemdir eins og hann er líklegur til.

Þegar stóriðjan gleypir í sig um eða jafnvel yfir 80% þeirrar raforku sem framleidd er í landinu en skilar kannski ekki nema fjórðungi eða svo af tekjum orkufyrirtækjanna þá er ekki allt með felldu.

Þetta hugtak sem Andri Snær er að vekja athygli á er eins og önnur mannanna verk eins og „hagvöxtur“ sem er ekkert annað en rányrkja þegar borgaralegur arður verður meiri en náttúrulegi arðurinn. Þá er tekið meira úr náttúrunni en hún er tilbúin að gefa af sér sem afurðir af dýrum og akrinum sem og öðru til lands og sjávar.

Nú munu stóriðjudjöflarnir taka við sér. Framagosar í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum hyggjast gott til glóðarinnar að selja aðgang að náttúruauðlindunum fyrir allt of lágt verð auk þess að eyðileggja enn meira.

Hvenær komið er nóg verður eins og hjá prestinum sem stjórnaði dansinum í Hruna, í augum þessara braskara er ekkert stopp, þó þeir eignist milljarða eins og Sigmundur Davíð á braski og forréttingum, þá ber þess að geta að líkklæðin hafa enga vasa. Þessi auður verður ekki tekinn með í gröfina.

  


mbl.is Útflutningstekjur marklaust hugtak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á flestu er reynt að græða

Spurning hvað efni leynast í þessari söluvöru og hversu mikinn gróða má hafa af þessu.

Fyrir nokkrum árum keypti eg brúsa í Bónus með kremi í: Aloa Vera, skin care lotion frá Delon fyrir innan við 300 krónur. Þetta krem hefur dugað vel gegn kláða, sólbruna og ýmsum kvillum öðrum. Þegar búið er að vera í klór þá hefur þetta reynst mjög gott rakakrem. Nú er brúsinn nánast tómur og hefi eg reynt að hafa upp á nýjum brúsa í Bónus en hvergi fundið.

Það er nú svo að það sem er ódýrt og reynist vel, er oft ófáanlegt. Kunnugt er að aloa vera plantan er nánast guðdómleg og gengur kraftaverki næst hversu hún kemur oft að gagni.

Það sem er ódýrt er kemur þeim að gagni sem minnst hafa efnin.


mbl.is Stinnari læri fyrir sumarið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin döpru vísindi

Sagt er að hagfræðin séu hin döpru vísindi þar sem fátt er að frétta af því góða. Hagvöxturinn er einkennileg skepna. Stjórnmálamenn og viðskiptamenn keppast um hafa hann sem allra mestan. Ofast kemur slíkur ofvöxtur samfélögunum í koll.

Á miðöldum kom fram þau sjónarmið að borgaralegur arður væri syndsamlegur. Með þessu hugtaki, borgaralegur arður, er átt við þann arð sem fjármunir, silfur og gull, peningar og ígildi þeirra, gæti ávaxtast sem best. Kaþólska kirkjan lagði blátt bann við slíkri starfsemi og varð hún tekin feginshendi af Gyðingum sem hvarvetna í Evrópu einbeittu sér að þessari iðju. Um allt það hefur margt verið ritað og sumt misjafnt eins og gengur og gerist. En Gyðingar voru litnir hornaugum, þeir sagðir gera allt til að auðga sig og kemur það fram í ýmsu, m.a. bókmenntum. Er sennilega leikverk William Shakespears „Kaupmaðurinn í Feneyjum“ einna þekktast sem fjallar um Gyðing sem beitti óvenjulegu bragði til að tryggja hagsmuni sína, bragð sem reyndist virka.

Hins vegar var náttúrulegur arður dásamaður af kirkjunni. Hinn kristni maður skyldi starfa í svita síns andlits fyrir þeim arði sem guði var þóknanlegur. Um náttúrulegan arð er átt við arðinn sem náttúran gefur af sér: kornið af akrinum, afurðirnar af dýrunum og allt sem átti uppruna sinn í náttúrunni.

Það er spurning þegar borgaralegur arður, vextir og velgengni af hlutabréfabraski og öðru, verður meiri en hinn náttúrulegi arður? Spurning er hvort þar sé ekki greinileg merki um rányrkju: Meira er tekið úr náttúrunni en hún er tilbúinn að gefa af sér við venjulegar aðstæður?

Best af öllu er að hagvöxtur mælist fremur lágur en stígandi. Vaxandi lukka er eftirsóknarverðari en skyndistökk af og til og svo slær í bakseglin.

Hin döpru vísindi halda áfram að mæla og meta. Vonandi gera stjórnmálamennirnir sér grein fyrir að ekki verður meira tekið frá náttúrunni en hún er tilbúin að veita af nægtarbrunni sínum. Þá er ekki von á góðu og hrakför er kannski fyrirsjáanleg.

Góðar stundir.


mbl.is Spá mun minni hagvexti en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgötvun Sigmundar

Alltaf hefur verið ljóst að til þess að geta tekið upp Evru þarf að uppfylla samning þann sem kenndur er við borgina Maastricht. Það er því nokkuð kostulegt að lesa þessa fullyrðingu Sigmundar að við þurfum að uppfylla þessi skilyrði.

Sigmundur Davíð er sá þingmaður sem mestan hefur auðinn að baki sér. Hann er úr fjölskyldu sem sópaði að sér miklum auð gegnum hermangið. Þá er hann giftur inn í Hagkaupsveldið.

Sjálfsagt hefur hann ekki þurft að taka nein lán eins og því miður allt of margir Íslendingar. Hann hefur einn af fáum auðgast eftir hrunið, haft drjúgar tekjur af innistæðum á verðtryggðum reikningum og þokkalegum vöxtum. Hann hefur verið drjúgur við að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, ætli líði sú vika að hann sé ekki í viðtali í sjónvarpinu 3-4 sinnum, kannski daglega, jafnvel tvívegis eða þrívegis. Og nú í aðdraganda kosninga þá kemur hann með eina loðnustu yfirlýsinguna um skuldalækkun ef ekki skuldaaflausn heimilanna. En geta þeir sem eru skuldum vafnir treyst þessum manni? Þeir sem skulda ekkert eða lítið, hafa engra hagsmuna að gæta.

Því miður er þessi yfirlýsingaglaði þingmaður í svipaðri stöu og verstu lýðskrumarar sem lofa og lofa en fáir telja sig koma auga á hvernig efna eigi kosningaloforðin. Þar er á brattann að sækja.

  


mbl.is Þurfum að uppfylla Maastricht
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einbeittur vilji

Svo virðist sem alltaf hafi verið fyrir einbeittur brotavilji að beita markaðsmisnotkun og hafa rangt við með því að beita öllum tiltækum ráðum að halda uppi markaðsvirði Kaupþings banka. Þessi leið að fá arabískan fursta að kaupa stóran hlut í bankanum er vægast sagt eins og lélegt leikrit. Saksóknari hefur lagt mikla vinnu í að rannsaka þessi mál og komist að þeirri niðurstöðu að þessi brot séu mjög alvarleg. Ákæra var gefin út og hún rökstudd mjög vel og vandlega. Öllum ráðum hefur verið beitt til að fresta málinu, m.a. kært til Hæstaréttar um 5 sinnum vegna einhverra lítilsverðra þátta í þeim tilgangi að tefja málið.

Viðtalið við hinn glaðhlakkandi Ólaf Ólafsson einn af hinum ákærðu, snnfærðu mig um að þeir ákærðu gera lítið úr ákærunum. Nú er vonast til að velviljuð ríkisstjórn þar sem Framsóknarflokkurinn gegnir lykilhlutverki, skeri þá Kaupþingsmenn úr snörunni.

Því er það einbeittur vilji að reyna allt sem unnt er að fá lengri fresti til að draga þetta mál sem lengst.

Framsóknarflokkurinn er flokka líklegastur að veita syndaaflausn, kannski gegn gjaldi sem ekki er ósennilegt enda hljóta þessir eignamenn að vera þokkalega loðnir um lófana eftir að hafa látið greipar sópa með athöfnum sínum á liðnum árum. Þeir hafa haft árstekjur venjulegs fólks á einni viku eða tveim meðan allt „svínaríið“ var í gangi.

Spurning er hvort þriðjungur íslendinga sé á því að veita þessum syndaselum aflausn. Vonandi ekki því þetta voru mennirnir sem áttu drjúgan þátt í að grafa undan efnahagslífi þjóðarinnar.


mbl.is Mistök að hafna kröfu um frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 242836

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband