Loksins dæmt fyrir markaðsmisnotkun

Sjálfsagt er dómur héraðsdóms það vel rökstuddur að Hæstiréttur eigi ekki annars kostar en að staðfesta hann. Ef Hæstiréttur kemst að annarri niðurstöðu þá verða þær undir öllum kringumstæðum mjög umdeildar.

Braskið með Exista var gjörsamlega siðlaust. Juku Bakkabræður og Róbert Tschenguiz ekki hlutafé félagsins um 50 milljarða en greiddu ekki krónu fyrir! Einungis hlutabréf í einhverju huldufyrirtæki upp á 1 milljarð var afhent félaginu, kannski hefur það jafnlítið gildi og hlutabréfin eru í Exista nú. Kannski löglegt en gjörsamlega siðlaust og nær ekki nokkurri átt.

Til hvers var þetta sett allt á svið? Jú var það ekki að komast yfir hluti litlu hluthafanna, þynna þá hluti svo rækilega út að þeir voru einskis virði og þar með var yfirtaka félagsins auðveld?

Það verður spennandi að fylgjast með þegar snara réttvísinnar færist nær aðalmönnunum.

Mosi


mbl.is Dæmdir fyrir markaðsmisnotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

1-0 fyrir okkur skrælingjunum í leit að réttlæti og leiðréttingu á siðbresti viðskiptaheimsins !

Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 17:45

2 identicon

'EG MUNDI SEGJA AÐ það séu a.mk.2-0 fyrir glæpahyskinu var ekki verið að ráða Jón Sigurðsson sem stjórnarformann Íslandsbanka hann var formaður fjármálaeftirlitsins þegar Iceslave var stofnað í Hollandi og skrifaði hólgrein í bæklingi Landsbankans sem átti að sýna frammá að þessir reikningar væru pottþétt snilld sem væntanlega hjálpaði Landsbankaþjófunum að plata enn fleiri Hollendinga að leggja inn á þessa þjófareikninga,og svo Árni Tómasson hann er líka í stjórn Íslandsbanka og var formaður skilanefndar,hann var dæmdur af fjármálaeftirlitinu fyrir brot í starfi fyrir nokkrum árum,ÞETTA STRÁKAR MÍNIR ER TÆR SNILLD,og hjartanlega velkomnir í hið nýja og óspillta bankakerfi á ÍSLANDI.

magnús steinar (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 18:09

3 identicon

En svo er spurningin - er þetta eins og í dópbíssisnum, að það séu bara peðin sem nást, dílerarnir og smyglararnir, en höfuðpaurarnir séu ósnertanlegir? Annars veit ég ekkert hversu háttsettir þessir gæar voru í glæpafélaginu.

Einar Ólafsson (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 18:13

4 Smámynd: Einar Ólafsson

Og svona aðeins í framhaldi af aths. Magnúsar Steinars: Það má eflaust týna marga til, en það má benda á að Guðfinna S. Bjarnadóttir sem bæði sat í stjórn Baugs og  FL group, var að taka sæti í stjórn hins nýstofnaða fjárfestingarsjóði lífeyrissjóðanna. Það væri reyndar fróðlegt að kanna hvaða stjórnmálaflokkar njóta stuðnings þessara stjórnarmanna.

Einar Ólafsson, 9.12.2009 kl. 18:26

5 identicon

Já er þetta ekki yndislegt,enn og aftur eru verkalýðsafæturnar og atvinnurekendur að díla með okkar peninga úr lífeyrissjóðunum,hvað haldið þið að þetta apparat kosti okkur sem eigum þennan pening. Og vorum við eitthvað spurð hvort við vildum leggja lífeyrissjóðsparnað okkar í þetta apparat sem einhver gervielíta á að deila og drottna,eru þessir afdönkuðu stjórnarmenn lífeyrissjóðanna,ekki búnir að stela nóg úr sjóðunum,hvað haldið þið að þetta einskis nýta hyski sem velst til stjórnunnarstarfa í þessu síðasta afkvæmi hinna útúr spilltu stjórnarmanna fái í laun,og hverjir haldið þið að borgi brúsan.Það verður ekki langt að bíða þangað til að það kemur skerðing á útborgun til sjóðsfélaga,því það er eins víst og svart er svart að þetta apparat á eftir að verða okkur sjóðsfélugum dýrt.

magnús steinar (IP-tala skráð) 9.12.2009 kl. 20:24

6 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Hvaða?

Jón Halldór Guðmundsson, 9.12.2009 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 242837

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband