Rauðavatnssprungurnar

Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 1982 lagði Davíð Oddsson sem leiðtogi $jálf$tæði$flokk$in$ megináherslu á að byggja fremur inn með Sundum en við Rauðavatn eins og fyrri vinstri meirihlutinn vildi gjarnan. Mikið gekk á hjá Davíð þá að stórhættulegt væri að byggja á þessum voðalegu sprungum sem gætu opnast fyrirvaralaust í næsta jarðskjálfta og gleypt byggingar og allt sem í þæm kynni að vera.

Þrátt fyrir aðvaranir Davíðs virðast þessar „aðvaranir“ hans ekki vera taldar meira virði en svo að ákveðið er af þeim Morgunblaðsmönnum á sínum tíma að byggja þrátt fyrir allt á vestustu sprungunni. Húsið reis á ógnarhraða enda Íslendingar yfirleitt fljótir að því sem þeir ráða vel við.

Nú er Davíð fluttur inn á þetta stórvarasama sprungusvæði sem ritstjóri Morgunblaðsins þó svo hættunni hafi aldrei verið aflýst. Spurning er hvort sprungurnar séu jafnhættulegar í huga Davíðs nú og vorið 1982, skal ósagt látið. En augljóst er að hann starfar núna á sprungu hvort sem hún kann að gleypa allt sem á henni er byggt og allt sem í byggingunni er.

Svona er pólitíkin einkennileg. Hræðsluáróður Davíðs átti sinn þátt í að hann vinnur umtalsverðan sigur í kosningum, hann komst til æðstu metorða á Íslandi fyrst sem borgarstjóri og síðar formaður $jálf$tæði$flokk$in$ og forsætisráðherra og pólitískur bankastjóri þó ekki hafi allir verið ánægðir með hann. Davíð hefur aldrei verið par hrifinn af gagnrýni hvort sem hún er málefnaleg eða af miður góðum rótum. Hann er ógjarn að vilja ræða málin nema hafa fengið spurningarnar með góðum fyrirvara og áskilja sér rétt að svara ekki nema því sem hann kærir sig um. Hann slær og slær, um sig og beinir sérstaklega orðum sínum til klappliðsins sem stendur að baki honum og er tilbúið að klappa hvenær sem þess er óskað.

Svona leiðtogar voru gjarnan valdir í þeim ríkjum þar sem lýðræði var ekki upp á marga fiska.

Það er spá Mosa að Davíð endist ekki lengi í stormasömum ritstjórnarstól Morgunblaðsins. Til þess er hann of viðkvæmur fyrir gagnrýni sem sennilega verður mun meiri og kröftugri en verið hefur fram að þessu.

Mosi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Heldurðu að ritstjórastóllinn endist lengi undir Davíð?

Sigurður Hreiðar, 27.9.2009 kl. 22:42

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Góð spurning Sigurður.

Eitt er víst: Tekin var gríðarleg áhætta að velja Davið sem ritstjóra. Kannski lifir blaðið ekki lengi hvað sem kann að gerast með stólinn.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 28.9.2009 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband