Aftengjum tímasprengjuna

Eitthvert furðulegasta uppátæki ráðamanns í starfsstjórn er að skilja eftir sig tímasprengju. Sprengjan var meira að segja sprungin áður en hann yfirgaf ráðuneytið sitt með skömm.

Í stjórnlagapraxís réttarríkisins er hlutverk starfsstjórna ekki annað en að stýra daglegum rekstri ráðuneytisins þangað til nýr ráðherra tekur við störfum. Þó svo að einhverjir aðilar kunni að hafa hagsmuni sem tengjast umdeildri ákvörðun þá hefði slíkur ráðherra bakað sér ábyrgð laga um ráðherraábyrgð og vera kærður fyrir Landsdóm. En sumir stjórnmálamenn telja sér allt leyfilegt. Hefur kannski einhver hagsmunaaðilinn greitt stórfé í kosningasjóð ráðherrans og nú eigi að efna það kosningaloforð? Það skyldi aldrei verða.

Yfirlýsing Steingríms J. um að farið verði yfir þetta mál er mjög varkár að ekki sé meira sagt. Hann vill aftengja tímasprengjuna með fyllstu gát og tillitsemi. Hagsmunaaðilar hafa hafið gríðarlega auglýsingaherferð of væri fróðlegt hversu mikið þeir leggja nú undir.

Ljóst er að hvalveiðar eru í hrópandi andstöðu við hagsmuni tengdum fiskútfluting og ferðaþjónustu. Hvalaskoðun nýtur mikilla vinsælda og væri ábyggilega vel hugsandi að útgerð eins eða jafnvel fleiri hvalveiðiskipa gæti ekki jafnvel skilað meiri tekjum en hvalveiðar. Fram að þessu hefur eigandi þessara skipa ekki ljáð máls á því, hann sér aðeins veiðar sem verkefni fyrir þessi skip. Reikna má með að útgerð slíks skips til hvalaskoðunar væri aðeins brot af útgerðarkostnaði við veiðar, vinnslu og sölu hvalafurða. Það er því undarlegt að eigandinn sjái ekki sömu útrásartækifæri og þau útgerðarfyrirtæki sem byggja afkomu sína á þjónustu við ferðafólk.

Gömlu hvalveiðiskipin eru sem lifandi söfn um fyrri sögu þegar sjálfsagt þótti að deyða og græða.Þau eru knúin áfram af gömlum gufuvélum sem eru mjög hljóðlátar og allra athygli verðar. Nú er unnt að hala inn stórfé án þess að nokkur blóðdrepi þurfi að renna.

Mosi

 

 


mbl.is 200 störf slegin út af borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Blessaður, Kristján Loftsson mun aldrei vera til í einhverja starfsemi eins og þú leggur til. Ég hef aldrei heyrt tala eins þröngsýnan og heimskan mann í Kastljósinu. Hann minnir mig á þennan kaptein (hvað hét hann aftur?) í Mobby Dick.

Úrsúla Jünemann, 3.2.2009 kl. 16:40

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Brjálaði skipsstjórinn í sögu Hermanns Mervill Moby Dick hét Ahab. Gott yfirlit um þessa skáldsögu og sögupersónurnar er á slóðinni: http://en.wikipedia.org/wiki/Moby_Dick

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 4.2.2009 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband