Mismunandi áherslur

„Álver fyrir Austurland“ var pólitískt markmið ýmissa stjórnmálamanna á sínum tíma. Þeim hefur orðið að ósk sinni og reist hefur verið eitt stærsta álver heims þar sem Ausfiðingar geta fundið sér eitthvað að dunda við. Skrýtið að loka þurfti litlum fiskvinnslufyrirtækjum vegna einhverra mengunar´mála en allt í góiðu lagi ef mengunarvaldurinn er nógu stór! Og að sami mengunarvaldurinn kaupi nógu mikið af hræbillegri orku sem fengin er með stórtækustu umhverfisspjöllum gjörvallrar Íslandssögunnar.

Ýmsir íslenskir stjórnmálamenn ráðherrar og sveitarstjórnarmenn mæta hver um annan þveran með skóflurnar sínar ef fréttist um vilja álversmanna að reisa fleiri álver. Þetta varð þjóðin vitni að í síðastliðnum mánuði þegar a.m.k. tveir ráðherrar mættu með skóflurnar sínar án þess að nokkur biði um það og tóku skóflustungur fyrir nýju álveri ásamt fleir stjórnmálamönnum. Af hverju skyldu þessir sömu menn ekki mæta með skóflurnar sínar þegar þarf að greiða götu ferðaþjónustunnar? Víða um land eru salernismál í lamasessi og er okkur Íslendingum til mikillar háðungar. Á fjölmennum ferðamannastöðum hefur allt verið eins og verið hefur eins og elstu menn muna: Við Geysi eru gamlir úr sér gengnir stígar sem fyrir löngu hefðu þurft að fá endurbætur. Við Gullfoss er ekki nema fyrir mjög fótfráið fólk að feta sig um torleiðið sem þar er. Á neðra planinu hefur ekki verið salernisaðstaða í áratugi og síðast þegar eg var þar á ferðinni um síðustu helgi vor öll salerni í Sigríðarstofu lokuð af tæknilegum ástæðum. Sama er upðp á teningnum víða um land: í Eldgjá, við Dettifoss, Leirhnjúka og Djúpalónssandi í sjálfum þjóðgarðinum á Snæfellsnesi. Er þó hér ekki um tæmandi talningu að ræða, fjarri því!

Óskandi er að ráðmenn þjóðarinnar mæti með skóflurnar sínar þegar taka þarf til hendinni þegar greiða þarf götu ferðaþjónustunnar. Það er fleira en álver sem ráðamenn íslensku þjóðarinnar þurfa að huga að!

Megi þeir sem oftast mæta með skóflurnar en án þess að álver komi við sögu! 

Mosi 


mbl.is Stórt álver kallar á virkjun Skjálfandafljóts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Já, gaman væri að sjá einhvern af þessum mönnum að taka skóflustungu fyrir klósettum sem vanta víðar um landið. Ég er sannfærð um að það mætti gera stórfrétt úr þessu alveg eins og þegar þeir moka upp fyrir þessum glórulausum álverum.

Úrsúla Jünemann, 18.7.2008 kl. 22:14

2 Smámynd: Níels Sigurður Þorvaldsson Dreki #36

Ég tætla ekki að neita því að það fylgir auðvita mengun öllum stóriðjum en á Reyðarfirði get ég fullyrt að það er gert allt til þess að hafa hana í lámarki og þetta veit ég af eigin raun því  ég vinn þarna sjálfur og umhverfiskröfurnar þar eru engum líkar og einnig öryggiskröfur. Ég er hinsvegar sammála þér í sambandi við aðstöðu fyrir túrista allstaðar um landið hún er ekki til fyrirmynda og þar mætti ríkið aðeins leggja meiri fjármuni til

Níels Sigurður Þorvaldsson Dreki #36, 18.7.2008 kl. 22:16

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Svona umræða er ágætt dæmi um víðsýni svokallaðra umhverfissinna.  Þeir sjá ekki gildi stóriðju, sem í hugum margra felst í því að skapa mörg verðmæt störf.  Mörg störf. það er nokkuð sem salerni fyrir 101-fólkið, sem vill koma út á land á 10 ára fresti til að skoða ósnortna náttúru, skilar sem betur fer ekki.  

Jón Halldór Guðmundsson, 21.7.2008 kl. 14:14

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Jón: Hvers vegna í ósköpum hafa Bandaríkjamenn ekki tekið betur á endurvinnslumálum? Hér á landi er endurheimt nálægt 90% á áldósum. Ef Bandaríkjamenn næðu sama endurheimtuhlutfalli gætu þeir lokað helming álvera sem þeir hafa á sínum snærum! Aðeins 5% orku þarf til að bræða aftur áldósirnar. Hvert er þessi umhverfisumræða komin? Snýst hún aðeins um það að við fórnum hverri náttúruperlunni í þágu sóunarinnar í öðrum löndum?

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 22.7.2008 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 242935

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband