Gamla tuggan

Margt hefur farið öðruvísi eftir hrunið hefði Framsóknarflokkurinn undir forystu fulltrúa braskaraaflanna í Framsóknarflokknum, verið í ríkisstjórn. Ætli hefði ekki verið farið harkalega að heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu sem tókst að forða nokkurn veginn.

Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn lagði mikla áherslu á gríðarlega lækkun ríkisútgjalda, m.a. með að skera niður heilbrigðiskerfið og skólakerfið. Ekki var farin sú leið heldur kappkostað að reyna mildari leiðir.

Hrunið var endapunktur margra áratuga spillingar í skjóli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms tókst það sem enginn þorði að vona: að þjóðin væri leidd út úr ógöngunum ekki á kostnað litla mannsins, heldur þjóðarinnar allrar. Braskaranir ætluðu sér alltaf að sleppa og lögðu lengi steina ío götu þeirra sem vilja rannsaka og eru jafnvel enn að.

Forystusauður Framsóknarmanna er mikill auðmaður en fjölskylda hans auðgaðist gríðarlega á hermangi og hamförunum í kringum hrunið.

Ekki er furða að Ásmundur Einar sjái gull í ranni Framsóknarflokksins, einu af megin spillingarbæli Íslandssögunnar. Hann hefur verið að reyna fyrir sér á þessum vettvangi og virðist vera nokkuð efnilegur í þessum efnum. Einn liðurinn í að afla sér trausts meðal forystunnar er að rægja þá sömu ríkisstjórn sem hann átti þó hlut í að mynda. Óhætt má segja um Ásmund Einar að sjaldan launar kálfur ofeldi sitt.

Formaður Framsóknarflokksins er eins og Mörður Valgarðsson endurborinn. Hann kemur ósjaldan fram í fjölmiðlum og með ísmeygjulegu fasi reynir hann að koma sjónarmiðum betur á framfæri.

Óskandi er að sem flestir sjái gegnum þennan blekkingavef þeirra þingmanna Framsóknarflokksins sem ýmist með fagurgala eða rógtungu reyna að afla hinum margspillta Framsóknarflokki fjöldafylgis.

Góðar stundir en án tilstuðlan þeirra sem frjálslega fara með fullyrðingar sem reynast vera byggðar meira og minna á sandi.


mbl.is Framsókn er flokkur samvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðjón; sem oftar !

Burt séð; frá efnisumfjöllun, greinar þinnar. 

Mörður forfaðir minn; á Hofi á Rangárvöllum, var Valgarðsson, hins Gráa - ekki Valgeirsson, svo ég komi nú leiðréttingu að, Mosvellingur góður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.8.2012 kl. 14:01

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Eitt skulum við hafa á hreinu og það er að Þjóðin er búin að sjá í gegnum þennan blekkingar og lygavef Samfylkingarinnar og VG og vegna þess þá eiga þessir flokkar ekki von á góðu gengi í næstu kosningum...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 20.8.2012 kl. 14:12

3 identicon

Mosfellingur; átti að standa þar - en, tek undir, með Ingibjörgu Guðrúnu, öngvu að síður, síðuhafi góður.

En; I. G. Magnúsdóttir ætti; sem annað vænt og vel gert fólk að athuga, að ÖLL íslenzka stjórnmála flóran, er eitt allsherjar tros - sem óskapnaður, í hvívetna, reyndar.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.8.2012 kl. 14:48

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Óskar: Þakka þér góða ábendingu um að Mörður var Valgarðsson. Búinn að leiðrétta.

Ingibjörg: Ertu virkilega svo blind á siðblindan lygaáróður þeirra sem tengdust hruninu og nú vilja ko0ma núverandi ríkisstjórn frá? Af ávöxtunum skulum við þekkja þá! Þessi ríkisstjórn hefur tekist ótrúlega að koma okkur út úr afleiðingum hrunsins sem forystusauðum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins efndu til og gátu ekki fundið neina leið skynsamlegri.

Auðvitað hefur núverandi ríkisstjórn gert ýms mistök sem bæði Jóhanna og Steingrímur hafa viðurkennt en á heildina litið var þetta kannski skásti kosturinn. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn munu að öllum líkindum efna til nýs gervigóðæris, lækkun skatta hjá hátekjumönnum og nánast gefa opinberar stofnanir undir yfirskyni einkavæðingar. Hvað skyldi verða langt í næsta hrun í boði þeirra glæframanna?

Eg leyfi mér að lýsa yfir fullu trausti á núverandi ríkisstjórn enda tel eg hana hafa unnið vel í þágu þings og þjóðár af fullum heilindum.

Páll Vídalín lögmaður (1667-1727) lét hafa eftir sér: Það skal fram sem fram horfir meðan rétt horfir!

Það er óskiljanlegt hvað margir vilja taka áróður hrunverja án nokkurs fyrirvara.

Guðjón Sigþór Jensson, 20.8.2012 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband