Handónýt stjórnarandstaða

Sumir hafa allt á hornum sér um þau mál sem ríkisstjórnin vill koma í gegn. Stjórnarandstaðan gerir allt til að koma öllum málum í hnút ýmist með endalausu bulli í formi umræðna eða beitir fyrir sig forseta lýðveldisins og LÍÚ sem virðast vera meira og minna í vasanum á vandræðagemlingum sem tengjast braski og hruni.

Athyglisvert að ærlegir útgerðarmenn eins og þeir HBGranda menn koma ekki nálægt þessu bulli. Þeir reka fyrirtæki með mikillri fyrirhyggju og taka ekki þátt í svona dellu eins og áróðursstríð LÍÚ manna sýnir okkur.

Við þurfum á betri stjórnarandstöðu að halda sem sýnir ábyrgð en ekki léttúð og jafnvel ómerkilegum óþverrahætti eins og stundum hefur komið fram.

Nægir þar að nefna þetta Icesave mál sem nú væri úr sögunni með sóma hefði forsetinn staðfest lögin. Nóg er af fjhármunum að borga þessa skuld en hún liggur vaxtalaus í vörslum Englandsbanka. Það gætu þeir fengið vitneskju um sem nenna að kynna sér þessi mál betur en ekki taka undir rætna áróðursbragð stjórnarandstæðunnar.

Það er nefnilega svo að útistandandi lán gamla Landsbankans hafa verið að skila sér og það sér hver vitiborinn maður sem setur sig inn í bankastarfsemi. Icesavereikningarnir komu til þess að mæta erfiðri lausafjárstöðu Landsbankans þegar hagstæð skammtímalán á markaði voru ekki lengur fyrir hendi. Þessir fjármunir eru ekki glataðir eins og áróðursmeistarar hafa haldið fram með forsetann í broddi fylkingar.

En lygin hefur þótt vera þægilegri en sannleikurinn. Verst er þegar fólk trúir lyginni fremur en staðreyndum málsins.

Kannski við þurfum betri stjórnarandstöðu sem sýnir ábyrgð fremur en glannaskap.

Góðar stundir.


mbl.is „Treystum ekki ríkisstjórninni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvita þurfum við betri stjórnarandstöðu, en fyrst þurfum við betri ríkisstjórn.

Hrólfur Þ Hraundal, 16.6.2012 kl. 17:58

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hrólfur:

Hefur ríkisstjórnin ekki verið að vinna björgunarstörf við mjög erfiðar aðstæður? Hefur nokkur ríkisstjórn í sögu lýðveldisins verið í jafn erfiðri aðstöðu og þessi sem sífellt er verið að ausa óhróðri?

Í mínum augum er eins og stjórnarandstaðan hagi sér eins og götustrákar sem grýta björgunarliðið meðan það er að störfum. Stjórnarandstaðan hefur hagað sér ákaflega óskynsamlega á undanförnum 3 árum. Tekið yfirleitt öllu illa, ekki sýnt mikinn vilja til samstarf en því meiri að draga fram tortryggni. Það var helst í seinna Icesavemálinu sem u.þ.b. hálf stjórnarandstaðan sýndi skynsemi og samþykkja þá lausn sem sennilega hefði verið fljótvirkust og komið okkur fyrr út úr fjárhagsvandræðunum. En það voru braskaranir sem virðast hafa haft Ólaf Ragnar í vasanum sem tók þá ákvörðun að leggja þau lög í þjóðaratkvæði. Lítil skynsamleg umræða fór fram um málið. Allt var keyrt í botn með einhverjum tilbúnum tilfinnigarökum en engri skynsemi. Í raun lá fyrir allan tímann að innistæður voru fyrir meira en 90% af Icesaveskuldunum. Og eignir í formi útistandani lána gáfu tilefni að meira en nóg myndi innheimtast. Um það mátti ekki ræða.

Í staðinn höfum við setið uppi með mun lakari lánakjör en hefði orðið ef þetta Icesavemál hefði verið leyst með skynsemi.

En forsetinn vildi þjóðaratkvæði um fortíðina, ekki það sem framundan er. Það er ádtæðan fyrir því að eg hyggst ekki kjósa Ólaf aftur en vel Ara Trausta n.k. 30.6.

Góðar stundir!

Guðjón Sigþór Jensson, 20.6.2012 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 242836

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband