Landlæknir grípi til neyðarréttar

Ljóst er að töluvert er um vitaóþarfa aðgerðir. Brjóstastækkanir ungra kvenna á þannig að vera gjörsamlega óþarfar. Brjóstin stækka þegar náttúran segir til sín þegar tíminn er upprunninn. Öðru máli er í þeim tilfellum þar sem krabbamein hafa valdið konum þjáningum og böli.

Hversu margar aðgerðir skyldu vera þarflausar?

Í dag standa málin þannig, að umsvifamesti læknirinn í brjóstastækkunum sem er jafnframt innflytjandi iðnaðarsilikons sem hefur verið notað í brjóstastækkanir er kominn í veikindafrí. Á meðan bíða hundruðir kvenna í fullkominni óvissu um stöðu mála. Landlækni ber að nálgast þau gögn nú þegar sem umræddur læknir hefur undir höndum enda er um mjög þýðingarmiklar upplýsingar um aðgerðir sem þessar konur gengust undir. Hér getur verið um líf að tefla enda er óvissan það versta sem einstaklingurinn lendir í.

Spurning er hvort þessi gögn séu háð eignarrétti viðkomandi læknis eða þeirra kvenna sem hann framkvæmdi aðgerðir á? Í öllu falli á landlæknir að grípa til neyðarréttar og fá afhent nú þegar þau gögn og upplýsingar sem varða skjólstæðinga þessa læknis enda er hann virðist vera í löngu veikindafríi.

Einnig er ljóst, að einkarekin þjónusta skrapar saman tímabundnum gróða en samfélagið ber skaða af þegar mistök verða.

Mér finnst mjög einkennilegt, að sá stjórnmálaflokkur sem lengst af var stærstur og umsvifamestur í samfélaginu, lætur þetta mál ekki ganga fyrir flestum öðrum. Hann beitti sér lengi í þágu frelsis og þjóðfélasgslegs öryggis. Kannski það séu orðin tóm. En afglöp eins manns eru flokknum mikilvægari en hagsmunir almennings. Ef til vill er þetta mál honum erfitt.

Hvað skyldi styrkjakóngurinn Guðlaugur Þór, fyrrum heilbrigðisráðherra segja um þessi mál? Hann hefur tjáð sig fjálglega um flest mál önnur en þau sem varða heilbrigði og öryggi allra þegnanna.

Þegar um heilbrigði og öryggi landsmanna er að ræða þá ber að krefjast þess að viðkomandi læknir afhendi landlækni öll gögn sem varða sjúklinga hans. Ef ekki, þá ber landlækni hiklaust að beita neyðarrétti til að tryggja varðveislu og aðgengni þessara gagna.


mbl.is 550 brjóstaaðgerðir á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig langar bara að benda á að þetta eru allt "vitaóþarfar" aðgerðir eins og þú skilgreinir það og líka uppbygging eftir krabbamein. Það er ekkert læknisfræðilegt sem krefst þess að sett sé sílíkon í konur sama hver ástæða brjóstleysis er.

Það vaxa ekki öllum konum brjóst frá náttúrunnarhendi og af hverju eru þær eitthvað meira hégómalegar en þær sem missa brjóstin sín vegna krabbameins og vilja laga það? Báðar eru konurnar jafn brjóstlausar til að byrja með!

Er ekki bara allt í lagi að virða það að einhverjar konur kjósi að láta sér líða betur með þessum aðferðum, hvort sem um fæðingar"galla" eða krabbamein er að ræða? 

Jóhanna (IP-tala skráð) 24.1.2012 kl. 16:09

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Alveg hjartanlega sammála þér Jóhanna.

Þessar „fegurðaraðgerðir“ eru oft ákaflega hégómalegar og tengjast einhverri ímynd tísku og æskilegs útlits. Frelsi kvenna og karlmanna hlýtur að byggjast á því hvernig bæði kynin vilja líta út. Að mínu viti er aðalatriðið að vera snyrtilegur og klæða sig eftir aðstæðum en aldrei eftir tísku eða væntingum markaðarins um æskilegt útlit.

Við erum sennilega líka sammála um að þessar fegrunaraðgerðir séu sprottnar af sterkri markaðshyggju nog gróðafíkn.

Góðar stundir!

Guðjón Sigþór Jensson, 25.1.2012 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 242836

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband