Hverjir voru flugumenn?

Flugumenn hafa verið á ferðinni a.m.k. 1000 ár í íslenskum heimildum. Þeir voru morðingjar sem myrtu á laun.

Eigi minnist eg þess að flugumenn hafi verið á ferðinni sem njósnarar eða í öðrum leynilegum sendiferðum nema sem laumumorðingjar.

Mosi


mbl.is Vill rannsaka hvort flugumaður hafi aðstoðað lögreglu hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Flugumenn eins og þeir í fréttinni eru það sem kallað er á ensku "saboteurs" eða stundum "insiders" eða "informers". Þeir þurfa alls ekki að ráðast á neinn, hvað þá myrða, en þeir eru alls staðar þar sem mótmæli eru annars vegar.

Í öllum pólítískum mótmælaaðgerðum (vinstrisinna eða stjórnleysingja) í t.d. Danmörku  plantar danska löggan (PET) flugumönnum (óeinkennisklæddum lögreglumönnum), sem ýmist efna til óeirða í annars friðsömum mótmælum eða taka myndir af þátttakendum á laun. Það er ekkert ólíklegt, að íslenzka löggan geri það líka.

Dæmi um annars konar flugumenn á Íslandi nútímans voru FLugumennirnir í FL-Group, sem voru sendir út af örkinni af stjórn samkeppnislagabrjótsins Icelandair til að gera út af við Iceland Express, sem var ógn við einokunarveldi Icelandairs, sem höfðu fengið að einir um hituna í boði stjórnvalda áratugum saman.

Vendetta, 23.1.2011 kl. 20:32

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þakka þér Vendetta.

Veistu hvað þetta ítalska orð merkir? Það mun merkja blóðhefnd og átta eg mig ekki á þessu heiti þínu. 

Flugumaður kemur fyrir í fornsögum, að mig minnir m.a. í Gísla sögu Súrssonar og merkir þar launmorðingja. Leit í Orðasafni Orðabókar HÍ www.lexis.hi.is leiðir í ljós að a.m.k. 25 dæmi eru orðtekin úr prentuðum íslenskum ritum. Þar er upprunaleg merking orðsins en þegar líða tekur á 19. öld er flugumaður farið að merkja „undirróðursmaður“ eða sá sem kemur af stað æsingum og auka glundroða jafnvel „njósnari“. Þannig er orð þetta útskýrt í Íslenskri orðabók sem Árni Böðvarsson og síðar Mörður Árnason ritstýrðu.

Upphafleg merking orðsins hefir vikið og er nú síðast nefnt í skýringum.

Góðar stundir

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 24.1.2011 kl. 22:12

3 Smámynd: Vendetta

Ég hef valið Vendetta, því að ég tel mig berjast fyrir réttlæti, þótt athugasemdir á bloggsíðum hrökkvi skammt.

Þessi breiðari merking á flugumanni er ágæt að geta haft við hendina. Það er nefnilega oft þannig að flugumanna verður vart áður en vissa er fyrir hvað þeir hafa nákvæmlega á samvizkunni. Alveg eins og orðið þvaghænsni getur haft margar merkingar (og líka flestar neikvæðar).

Í stað gömlu merkingarinnar á flugumanni er hægt að notast við heiti eins og leigumorðingi eða álíka, sem er mjög nákvæmt og fer ekki milli mála um hvers konar konar starfssamning er að ræða.

Vendetta, 24.1.2011 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 242837

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband